Erindi um gönguleiðir í Fjallabyggð og Fljótum ásamt göngu undir leiðsögn Björns Z. Ásgrímssonar

Fljót í Skagafirði
Fljót í Skagafirði

Laugardaginn 20. maí kl. 11:00 í Ráðhússal Fjallabyggðar, Gránugötu 23, Siglufirði mun Björn Z. Ásgrímsson flytja erindi um gönguleiðir í Fjallabyggð og Fljótum. Eftir erindið verður sameinast í bíla og ekið út í Fljót þar sem gengin verður gönguleiðin Hlöðnuvík - Hraunakrókur. Hér er um létta og þægilega göngu að ræða á allra færi. Áætlað er að gangan taki um 2-3 klst., og er gönguhækkun um 100 m.
Gangan hefst rétt fyrir ofan við afleggjarann heim að Hraunum í Fljótum, við skilti sem vísar á gönguleiðina til Siglufjarðar. Þar er upphaf hestagötunnar sem lögð var 1905.
Er miðað við 10 manna lágmarksskráningu.

Verð 2.500 kr. pr. mann

Skráning inn á Sportabler www.sportabler.com/shop/fjallabyggd/hatindur