Glæsileg þátttaka Fjallabyggðar á Landsmóti UMFÍ 50+

Keppendur frá Fjallabyggð tóku um síðustu helgi þátt í Landsmóti UMFÍ 50+, sem að þessu sinni var haldið í Eyjafjarðarsveit. Fulltrúar Fjallabyggðar voru nokkuð margir á mótinu og tóku þátt í fjölmörgum greinum sem í boði voru, bæði einstaklings- og liðsgreinum.

Mótið tókst afar vel í alla staði og ríkti þar einstaklega góð stemning, þar sem hreyfing, samvera og gleði voru í fyrirrúmi. Keppendur úr Fjallabyggð stóðu sig með miklum sóma og komu margir þeirra heim með verðlaun eftir glæsilega frammistöðu í sínum greinum.

Landsmót UMFÍ 50+ er frábær vettvangur fyrir fólk 50 ára og eldra til að njóta hreyfingar, hitta fólk víðs vegar að af landinu og skapa góðar minningar. Þátttaka Fjallabyggðar sýnir vel þann kraft og þann metnað sem býr í íbúum sveitarfélagsins þegar kemur að heilsueflingu og virkri þátttöku í samfélaginu.

Við óskum öllum þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim fyrir að vera glæsilegir fulltrúar Fjallabyggðar á mótinu.

Myndir frá mótinu