Gönguhópurinn á Siglufirði lét verkin tala og plokkaði helling af rusli

Miðvikudaginn 27. maí lagði gönguhópurinn á Siglufirði af stað í sína vikulegu göngu, en að þessu sinni var göngunni gefinn sérstakur tilgangur. Hópurinn gekk suður Snorragötu og nýtti tækifærið til að plokka ruslið sem kom undan snjónum nú í vor.

Það kom á óvart hversu mikið rusl hafði safnast saman yfir veturinn og var af nógu að taka. Með góðri samvinnu og jákvæðu hugarfari tókst hópnum að fylla nokkra poka og gera nærumhverfið snyrtilegra og skemmtilegra fyrir alla, enda um vinsæla gönguleið að ræða.

Þegar plokkinu lauk mætti Árni Heiðar Bjarnason á hjólinu sínu og sá til þess að ruslið kæmist alla leið í rétta förgun. Það gekk fumlaust fyrir sig enda Árni vanur að þjónusta íbúa með því að sækja garðúrgang og fleira.

Gönguhópurinn vill nota tækifærið og hvetja íbúa til að huga vel að nærumhverfinu. Smá framlag frá mörgum getur skipt miklu máli og saman getum við haldið Fjallabyggð hreinni, fallegri og betri fyrir alla.

Við minnum jafnframt á að gönguhóparnir eru á sínum stað alla miðvikudaga kl. 10:30 frá Húsi eldri borgara í Ólafsfirði og kl. 11:15 frá Ráðhúsinu á Siglufirði og allir eru velkomnir með hvort sem markmiðið er hreyfing eða góður félagsskapur.

Myndir hér