Síðasta skipulagða ganga sumarsins hjá Gönguhópi 60+ á Siglufirði fór fram miðvikudaginn 1. júlí, þegar gengið var upp í Hvanneyrarskál.
Veðrið var eins og best verður á kosið þegar 15 galvaskir þátttakendur lögðu af stað upp í Hvanneyrarskál. Hver og einn gekk á sínum hraða og lögð var áhersla á að njóta útiverunnar, samverunnar og fallegs útsýnis.
Frá því gönguhópurinn hóf göngu sína síðasta haust hefur þátttakendum fjölgað jafnt og þétt, sem sýnir vel þann áhuga sem er á reglulegri hreyfingu og góðum félagsskap. Göngurnar hafa skapað skemmtilegan vettvang þar sem hreyfing, útivist og samvera fara saman.
Þótt þetta hafi verið síðasta skipulagða ganga sumarsins mun gönguhópurinn halda áfram að ganga yfir sumarið. Áhugasömum er velkomið að slást í hópinn, en gengið verður frá Ráðhúsinu á Siglufirði kl. 11:00 á miðvikudögum.
Sjáumst spræk í haust!