Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á áhugaverðan og mikilvægan viðburð í Tjarnarborg þar sem fjallað verður um félagslega einangrun og leiðir til að sporna gegn henni.
Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur sérhæfð í geðheilbrigði aldraðra, og Svavar Knútur Kristinsson, heimspekingur og forvarnarfulltrúi, munu deila reynslu sinni og innsýn í þetta mikilvæga málefni. Þau hafa síðustu mánuði ferðast um landið í samstarfi við vitundarvakninguna Tölum saman á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, þar sem þau vekja athygli á áhrifum félagslegrar einangrunar og veita hagnýt ráð um hvernig við öll getum lagt okkar af mörkum.
Félagsleg einangrun er alvarlegur lýðheilsuvandi sem getur haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Með því að auka vitund og virkja samfélagið getum við bætt lífsgæði og styrkt tengsl á milli fólks á öllum aldri.
Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis. Við hvetjum sérstaklega einstaklinga 60 ára og eldri, fjölskyldur þeirra, vini og aðstandendur til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðunni.